- Teppin eru fyrir börn á aldrinum 0 - 18 ára.
- Lágmarkstærð á ungbarnateppi skal vera 1 x 1 metri.
- Teppið þarf að vera vel saumað og þola tíðan þvott.
- Teppið þarf að vera vel stungið í vél eða handstungið. Miða skal við að óstungin flötur skuli ekki vera stærri en lófi (u.þ.b. 10cm). Reynslan segir okkur að efnið slitnar fyrr í litlu stungnu teppi.
- Merkja skal teppið með nafni klúbbs eða einstaklings og ártali. Merkingin þarf að vera skýr og varanleg.
- Það er í góðu lagi að endurnýta efni svo framarlega að þau séu heil og hrein.
- Öll teppi sem skilja sér til nefndarinar eru skráð sem Hetjuteppi með mynd, stærð, ártali og nafni gefanda.
- Skilafrestur er alltaf viku fyrir aðalfund á hverju ári.
Með kveðju og kærum þökkum fyrir framlög ykkar á liðnum árum, Dagbjört Guðmundsdóttir, Borghildur Ingvarsdóttir og Hrönn Antonsdóttir.