Velkomin á nýja heimasíðu Íslenska bútasaumsfélagsins.
Eins og hér sést hefur heimasíða félagsins fengið nýtt og breytt útlit.
Nokkrar ástæður eru fyrir því að ákveðið var að breyta síðunni. Í fyrsta lagi þótti síðan sem áður var í notkun nokkuð flókin í vinnslu en markmiðið er að þegar nýjir umsjónaraðilar taka við geti þeir/þær gert það á sem einfaldastan hátt. Stjórnkerfi þessarar síðu er mun einfaldara í notkun og minnir viðmót hennar, þegar unnið er við að setja inn nýtt efni, á Word umhverfið sem flestir þekkja vel.
Í öðru lagi er mun ódýrara fyrir félagið að halda úti nýju síðunni.
Í þriðja lagi þykir útlit þessarar síðu þægilegra til aflestrar og býður umhverfið upp á auðveldari og fjölbreyttari möguleika hvað það varðar, t.d. væri mjög einfalt að skella síðunni í jólabúning í desember!
Einhverjir taka þó sjálfsagt eftir því að nokkrir titlar á hliðarreitum eru á ensku en því er því miður ekki hægt að breyta, a.m.k. ekki strax. Við höfum sent fyrirspurn á fyrirtækið sem býður upp á umhverfið og er það á dagskrá hjá þeim að koma þessum fyrirsögnum inn á sem flestum tungumálum. Miðað við þægilegra viðmót og mun ódýrar viðhald ættum við að geta litið fram hjá þessu í bili :)
Það er von mín að þessi síða nýtist félagsmönnum, ekki síður en sú sem áður var í notkun.
Allar góðar hugmyndir, ábendingar og spurningar eru vel þegnar og má senda þær til mín á netfangið berglsn hja hotmail.com
Hugmyndin er að kynna síðuna formlega á næsta félagsfundi, þriðjudaginn 30. október 2007 í Fella- og Hólakirkju, kl. 20.00
Kær kveðja,
Berglind Snæland, vefstjóri