Félagskonu vantar efni eins og sjást hér á myndinni, sagt er að þetta séu Thimbleberries efni. Ef þið eigið svona efni og getið séð af þeim vinsamlegast hafið samband við Söndru Fredriksson, geimveran hja simnet.is
Hefur einhver áhuga á efnisbútum úr bómull? Ég er með heilan stóran IKEA-poka troðfullan af bútum í alls konar litum sem henta vel í ásaum og bútasaum, t.d. í hexagon, ferhyrninga og stjörnur. Efnin eru bæði einlit, mynstruð og köflótt og ég þarf að losna við þau þar sem ég á svo mikið. Vonandi hefur einhver þörf fyrir þau. Síminn hjá mér er 8 646 646