Evrópsku bútasaumssamtökin - European Quilt Association (EQA)
EQA var stofnað 1989 í Oxford á Englandi af 9 evrópuþjóðum og á seinni árum fylgdu fleiri þjóðir í kjölfarið. Reglur og markmið EQA voru ákveðin á fyrsta árlega fundi sem haldin var í Bern í Sviss árið 1990.
Markmið EQA er að kom bútasaumsfólki í Evrópu saman til að kynnast hvert öðru og skiptast á þekkingu og leikni. Nú eru um það bil 61.500 meðlimir í EQA.
Íslenska bútasaumsfélagið fékk inngöngu í EQA árið 2005 og af því tilefni fór formaður ÍB á fund EQA sem haldin var í tengslum við The Festival of Quilt en þetta er í þriðja sinn sem sú hátíð er haldin. Twistedthread stendur fyrir The Festival of Quilts og býður öllum fulltrúum EQA að taka þátt í hátíðinni og greiðir fyrir gistingu og uppihald.
Með aðild fáum við eintök af öllum félagsblöðum aðildarfélaganna.
Það er mikilvægt fyrir okkur að vera félagar í EQA þar sem við fáum stuðning og greiðari aðgang að upplýsingum um það sem er að gerast í bútasaumsheiminum t.d. sýningar, námskeið og þ.h.
Heimasíða EQA: www.eqa.ch (til stendur að uppfæra heimasíðu EQA)