Dagskrá félagsfunda veturinn 2008 – 2009
Fundarstaður: Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju
Athugið breyttan fundardag og tímasetningu.
Miðvikudagskvöldið 24. september 2008 kl. 19.30
Miðvikudagskvöldið 29. október 2008 kl. 19.30
Miðvikudagskvöldið 26.11.08 kl. 19.30 Jólafundur
- Verslun með kynningu.
- Sýnikennsla á handsaumuðum smáhlut. Takið með saumadótið; efnisbúta, vattbúta og tölur. Blýant, blað, reglustiku, skæri og lím.
- Sýning á verkum úr samkeppninni – Fögnuður.
- Bútahappdrætti: Jólaefni 7x7”. Merkið bútana og setjið í körfu við innganginn. Dregið verður úr nöfnum þeirra sem taka þátt.
- Happdrætti, dregið úr aðgöngumiðum.
- Allir velkomnir með jólaleg verk, teppi dúka og smáhluti til að sýna.
Miðvikudagskvöldið 28.01.09 kl. 19.30
- Félagsmenn á faraldsfæti – ferðasögur í máli og myndum.
- Sýningin Landið mitt, 170 verk í A4 stærð frá félögum innan Evrópsku bútasaumsfélaganna.
- Happdrætti, dregið úr aðgöngumiðum.
Miðvikudagskvöldið 25.02.08 kl. 19.30
- Fræðsla um tvinna og vatt.
- Bútasaumur í eldhúsi og borðstofu. Óskað er eftir því að félagsmenn mæti með gardínur, diskamottur, tehettur, yfirbreiðslur yfir hrærivélar og brauðristar og fl. Einnig væri áhugavert að heyra hvaðan hugmyndir komu og hvar var leitað fanga við saumaskapinn. Hægt er að senda ljósmyndir á netfangið: fingurbjorg hja gmail.com sem hægt væri að varpa upp á tjald ef nægilega margar myndir berast.
- Öll önnur nytjalist sem hægt er að segja frá og sýna eru velkomin.
- Bútahappdrætti: Eldhúsefni 7x7”. Merkið bútana og setjið í körfu við innganginn. Dregið verður úr nöfnum þeirra sem taka þátt.
- Happdrætti, dregið úr aðgöngumiðum.
Miðvikudagskvöldið 25.03.08 kl. 19.30 - Aðalfundur
- Sjá aðalfundarboð þegar nær dregur
- Undirbúningur fyrir NQT
- Sýning á Hetjuteppum sem borist hafa.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta tímanlega á fundina og huga að því að slökkva á farsímum.







Comments