Í haust fékk félagið batikefni að gjöf frá félagsmönnum sínum. Í tilefni af 10 ára afmæli félagsins í ár var Afmælisteppi saumað af Margréti Árnadóttur og það stungið af Sæunni Thorarensen. Fyrir 500 krónur er hægt að freista gæfunar og eiga möguleika á því að eignast þetta glæsilega teppi. Hægt verður að taka þátt fram til 17. september næstkomandi og verða miðar í boði á öllum viðburðum félagsins fram að þeim tíma. Einnig er hægt að hafa samband við gjaldkera félagsins sem bætir nafni ykkar í lukkupottin gegn greiðslu.







Comments