Kæru félagsmenn. Á félagsfundi miðvikudaginn 28. október spunnust umræður um Log Cabin / bjálkakofa dúk sem sýningarnefnd hvetur félagsmenn til að sauma fyrir jólafundinn 25. nóvember næstkomandi. Rétt er að taka fram að dúkurinn þarf alls ekki að vera ferhyrndur, en hann þarf að vera að lágmarki 60 cm og hámark 100 cm.
Í Fréttabréfi Íslenska bútasaumsfélagsins, 2. tbl, 9 árgangur 2009, sem kom út núna í haust er að finna á bls 28 og 29 nokkrar útgáfur af Log Cabin mynstrinu sem hefur verði þýtt bjálkakofi á íslensku.
Ef Log Cabin er slegið er inn í leitarvél koma upp óteljandi útfærslur á hvernig megi sauma bjálkakofa. Hér er dæmi um síðu er skýrir vel hvernig á að sauma bjálkakofann.
Nánari upplýsingar um frágang og skilafrest er að finna í meðfylgjandi auglýsingu sem einnig var birt í Fréttablaðinu nú í haust.
Sýningarnefndin.







Comments